Áður en farið er í sjúkraþjálfun er æskilegt að sjúklingur fái beiðni fyrir sjúkraþjálfun. Þá beiðni skal hafa meðferðis til sjúkraþjálfara. Þó er hægt að koma í sjúkraþjálfun í allt að 10 tíma á hverjum 365 dögum án beiðni sé haft samráð við lækni.
Ekki þarf að senda beiðni vegna sjúkraþjálfunar til Sjúkratrygginga Íslands nema um sé að ræða: Langtímameðferð (ákveðin í samráði við sjúkraþjálfara eða lækni), heimasjúkraþjálfun eða þjálfun vegna slysa sem bótaskyld eru hjá Sjúkratryggingum Íslands. Í slíkum tilfellum sendir sjúkraþjálfarinn beiðnina til Sjúkratrygginga Íslands.
Meðferðarform
Skoðun
Sjúklingur er almennt skoðaður við fyrstu komu til sjúkraþjálfa og greiðir sérstakt skoðunargjald fyrir það.
Einföld meðferð
Ein tegund meðferðarforms þar sem leitast er við að beita gagnreyndri vitneskju á aðferðum innan sjúkraþjálfunar.
Almenn meðferð
Sjúkraþjálfun á stofu, þar með talin meðferð barna yngri en 12 ára og þung meðferð.
Heimasjúkraþjálfun
Forsenda fyrir heimasjúkraþjálfun er að fram komi á beiðni læknis að óskað sé eftir heimasjúkraþjálfun. Sjúkraþjálfari þarf að sækja fyrirfram um þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði við heimasjúkraþjálfun. Sjúklingur greiðir sama gjald fyrir heimasjúkraþjálfun og vegna sjúkraþjálfunar á stofu. Sjúkratryggingum Íslands er þó heimilt að fella niður greiðsluþátttöku sjúklings í heimasjúkraþjálfun ef um er að ræða mjög alvarlegt sjúkdómsástand (t.d. krabbamein eða Parkinsonssjúkdóm á lokastigi) eða mjög alvarlega fötlun.
Hópþjálfun
Miðað er við að 2-10 einstaklingar séu í hópþjálfun á sama tíma. Meðferð taki a.m.k. 45 mínútur.




