Spurt og svarað

Hvað þarf ég að fara oft í sjúkraþjálfun?

Það er mjög misjafnt hve oft hver einstaklingur þarf að fara í sjúkraþjálfun. Það veltur allt á einkennum og framgangi meðferðar. Beiðnin sem læknir skrifar gildir í 20 skipti. Ef þörf er á fleiri skiptum en 20 þá þarf að sækja sérstaklega um það til Sjúkratrygginga Íslands.

Þarf ég að hafa með mér æfingaföt þegar ég mæti í sjúkraþjálfun?

Yfirleitt er það ekki nauðsynlegt í fyrsta tíma, annars veltur það á meðferðarforminu og því er best að ráðfæra sig við sjúkraþjálfarann.

Eru búningsklefar í Sjúkraþjálfun Íslands?

Já, það eru búningsklefar með fyrirtaks sturtuaðstöðu í Sjúkraþjálfun Íslands

Hvað gerist ef ég kemst ekki í tíma?

Ef þú lætur vita með góðum fyrirvara og í síðasta lagi fyrir kl 10.00 sama dag fellur tíminn niður en ef ekki þá þarftu að greiða hann fullu verði.

Hvar er hægt að sækja um endurgreiðslu vegna kostnaðar við sjúkraþjálfun?

 Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við sjúkraþjálfun, best er að leita upplýsinga hjá viðkomandi stéttarfélagi.  Íþróttamenn 16 ára og eldri geta sótt um endurgreiðslu í slysatryggingasjóð ÍSÍ.  Í sumum tilfellum taka sjúkrasjóðir lífeyrissjóðanna þátt í kostnaði.

Opnunartímar

Sjúkraþjálfun Íslands er opin frá 8:00 til 17:00 alla virka daga

Tilkynningar

Vinsamlegast tilkynnið forföll tímanlega eða í síðasta lagi fyrir 10.00 sama dag