Sólveig hefur störf.

23. ágúst 2022

Sólveig Þórarinsdóttir sjúkraþjálfari sem starfaði hjá okkur frá 2009 til 2015 áður en hún hélt til Noregs þar sem hún lagði stund á framhaldnám í sjúkraþjálfun kemur aftur til starfa núna í byrjun september.
Í Noregi lauk hún mastersnámi í desember 2018 frá Norwegian School of Sports Sciences, þema mastersverkefnis: Forvarnir krossbandssmeiðsla.
Sólveig hefur verið í doktorsnámi við Oslo Sports Trauma Research Center frá 2019 og er þema doktorsverkefnis: Meiðsli knattspyrnukvenna í efstu deild Noregs, með sérstakri áherslu á nárameiðsli og áhrif tíðarhrings og hormóna getnaðarvarna. Hún stefnir á að ljúka því á næsta ári.
Hún kemur til með að starfa í Kringlunni og bjóðum við hana hjartanlega velkomna.

Fleiri fréttir

29. ágúst 2026
Frá og með 1.september 2026
28. ágúst 2026
Lætur af störfum þann 28.ágúst 2026.
30. júlí 2026
Þann 5.ágúst.
17. júlí 2026
Hefur störf 20.júlí 2026.
10. júlí 2026
Hefur störf 13.júlí 2026.
6. júlí 2026
New Title
29. júní 2026
Hefur störf þann 1.júlí 2026.
22. júní 2026
Klukkan 8:00 til 16:00 alla virka daga.
19. júní 2026
Unnið er að stækkun í Urðarhvarfi.
27. mars 2026
Dr. Sólveig Þórarinsdóttir - hljómar svo vel