Sjúkraþjálfun Íslands í samstarf við Euneo.

Daníel Már Friðriksson framkvæmdastjóri Euneo Health og Ólafur Þór Guðbjörnsson framkvæmdastjóri Sjú…
Daníel Már Friðriksson framkvæmdastjóri Euneo Health og Ólafur Þór Guðbjörnsson framkvæmdastjóri Sjúkraþjálfunar Íslands.

Sjúkraþjálfun Íslands, stærsta sjúkraþjálfunarstofa landsins, og íslenska sprotafyrirtækið Euneo Health hafa náð samkomulagi um innleiðingu og þróun heilbrigðistæknilausnar sem styður sjúkraþjálfara í þágu viðskiptavina þeirra.

Heilbrigðislausnir Euneo hjálpa fólki að fylgja heimaæfingum og taka virkan þátt í eigin meðferð. Lausnin gefur sjúkraþjálfurum betri innsýn í meðferð viðskiptavina og hjálpar þeim að styðja betur við þá yfir allan meðferðartímann.

"Við viljum vera í fararbroddi þegar kemur að því að veita framúrskarandi þjónustu. Innleiðing á lausnum Euneo er liður í því að styrkja gæðastarf stofunnar og veita viðskiptavinum okkar bestu lausnir sem völ er á" segir Ólafur Þór Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri Sjúkraþjálfunar Íslands.

Euneo hlaut nýverið fjórar viðurkenningar á Íslensku vefverðlaununum í mars, þar á meðal Verkefni ársins og Stafræna lausn ársins.

„Við stöndum frammi fyrir áskorunum í heilbrigðismálum um allan heim, álag á heilbrigðisstarfsfólk eykst og biðlistar lengjast. Þessi þróun kallar á nýja nálgun, þar sem einstaklingar fá meiri stuðning til að taka virkan þátt í eigin meðferð. Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að leggja okkar af mörkum í nánu og góðu samstarfi við Sjúkraþjálfun Íslands sem er leiðandi á sínu sviði,” segir Daníel Már Friðriksson, framkvæmdastjóri Euneo Health.