Fréttir

Mömmunámskeið

Sjúkraþjálfun Íslands er að fara af stað með mömmunámskeið þann 11.janúar nk. Þjálfun fer fram í Sjúkraþjálfun Íslands í Kringlunni frá 10.30-11.15 á þriðjudögum og föstudögum. Námskeiðið verður í 6 vikur og við bjóðum upp á pláss fyrir 10 konur, a.m.k. 6 vikum eftir barnsburð. Námskeiðið hentar konum með grindar- og mjóbaksverki í kjölfar meðgöngu sem og einkennalausum konum sem vilja vinna í grunnstyrk eftir meðgöngu. Börn eru velkomin með mæðrum sínum á námskeiðið. Ásamt styrktarþjálfun verður lögð áhersla á fræðslu um stoðkerfið og viðeigandi þjálfun eftir meðgöngu og fæðingu. Kennarar námskeiðinu eru sjúkraþjálfararnir Guðrún Halla Guðnadóttir, Nadia Margrét Jamchi og Þórdís Ólafsdóttir. Tekið er á móti skráningu í netfangið gudrunhalla@sjukratjalfun.is með fullu nafni og kennitölu.